







Ítalskur heimilismatur frá Napólí, frá pasta e patate til crema di ricotta með súkkulaði og appelsínu.
Heillandi Napólí, suðræn og seiðandi. Ertu klár í að uppgötva matar leyndarmál Napólí? Á þessu námskeiði sláumst við í för með Valerio Gargiulo og eldum nokkra ekta rétti frá Napólí, með hráefni sem auðvelt er að nálgast á Íslandi. Valerio er fæddur og uppalinn í Napólí en hefur búið á Íslandi síðan 2002. Hann er lögfræðingur að mennt, ástríðukokkur og rithöfundur. Valerio hefur gefið út 11 bækur, flestar eru skáldsögur um yfirnáttúrulega atburði og ævintýri, en tvær bókanna eru matreiðslubækur. Annars vegar bókin „Uppskriftir Valerios frá Napólí“ og hins vegar bókin „Matarvenjur Miðjarðarhafsins: Suður ítalskar uppskriftir“.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.