Komið með hópinn í Salt Eldhús þar sem þið eldið saman gómsætan mat frá grunni undir handleiðslu fagmanns og gæðið ykkur svo á afrakstrinum.

Hjá okkur er hópurinn með frá fyrstu stundu. Allir elda, smakka og spyrja, og kokkurinn sér um að allt gangi upp.
Afmæli, fjölskylduboð, vinir í heimsókn eða bara hópur sem hefur ekki hist almennilega lengi.
Kokkurinn leiðir hópinn í gegnum hvert skref og það er alltaf pláss fyrir spurningar.

Kokkurinn kynnir hráefnið og réttina sem þið eldið, og segir söguna á bak við þá.

Allir fá verkefni við hæfi og leggja sitt að mörkum, undir leiðsögn kokksins.

Hópurinn borðar saman það sem hann eldaði, í notalegu umhverfi og góðum félagsskap.


Ef vinir eða ættingjar eru í heimsókn er íslenskur matur góð leið til að kynna þeim landið.
Við eldum úr íslensku hráefni, segjum söguna á bak við réttina og kennum á ensku.
Þegar sest er til borðs vita gestirnir meira um matinn, því þeir elduðu hann sjálfir.
Þetta má alveg vera óljóst í bili! Segðu okkur bara það helsta og við finnum út úr rest.
Nei. Kokkurinn leiðir hópinn í gegnum hvert skref og það eina sem þarf er að vera til í að taka þátt.
Við getum tekið á móti allt að 36 manns, en það er þá ansi þétt. Á opin námskeið koma ekki fleiri en 16.
Já. Þegar þið bókið er eldhúsið ykkar allan tímann.
Já, og í einkahópum er það yfirleitt lítið mál. Við getum lagað matseðilinn að flestum þörfum. Láttu okkur vita í fyrirspurninni og við finnum lausn með þér.
Við eigum bara eitt eldhús, þannig að þegar dagur bókast, þá erum við bókuð. En ef við erum laus í næstu viku, þá tökum við glöð á móti ykkur, þannig að ekki hika við að senda fyrirspurn sama hve stutt er í viðburðinn.
Námskeiðin okkar eru á bilinu 2-3,5 tímar, að meðtalinni máltíðinni.
Kennsla, allt hráefni, svuntur og áhöld, vegleg máltíð og allt uppvask og frágangur. Eftir á fá allir uppskriftir og myndir sendar í tölvupósti.
Það má fækka gestum allt að 7 dögum fyrir viðburðinn. Ef þú afbókar meira en 60 dögum fyrir er það að kostnaðarlausu. Eftir það fæst staðfestingargjaldið ekki endurgreitt og innan 14 daga greiðist fullt verð.