Hvort sem það er vinnustaðurinn, vinahópurinn eða stórfjölskyldan, þá eldum við saman frá grunni og setjumst svo til borðs.

Það getur verið hópefli, árshátíð, afmæli eða bara gott kvöld saman.

Allir fá hlutverk og enginn situr hjá. Í lokin sest hópurinn saman til borðs og borðar það sem hann eldaði.

Afmæli, útskrift eða endurfundir. Það er fátt skemmtilegra en að elda saman og setjast svo til borðs með fólkinu sínu.

Ertu með erlenda samstarfsaðila eða viðskiptavini í heimsókn? Þá eldum við íslenska veislu með hópnum og kennum á ensku.
Það þarf enga reynslu. Allir fá verkefni við hæfi og leggja sitt að mörkum.

Hve stór er hópurinn, hvert er tilefnið og hvenær hentar? Við sendum tillögu og verð.

Þú velur námskeið úr dagskránni okkar og við sjáum um að allt sé tilbúið þegar hópurinn mætir.

Við tökum á móti hópnum á 6. hæð í Þórunnartúni 2. Svo er eldað saman og í lokin sest allur hópurinn til borðs.
Þetta má alveg vera óljóst í bili! Segðu okkur bara það helsta og við finnum út úr rest.
Hér eru svör við því sem við erum oftast spurð um.
Nei. Kokkurinn leiðir hópinn í gegnum hvert skref og það eina sem þarf er að vera til í að taka þátt.
Við getum tekið á móti allt að 36 manns, en það er þá ansi þétt. Á opin námskeið koma ekki fleiri en 16.
Námskeiðin okkar eru á bilinu 2-3,5 tímar, að meðtalinni máltíðinni.
Já, og í einkahópum er það yfirleitt lítið mál. Við getum lagað matseðilinn að flestum þörfum. Láttu okkur vita í fyrirspurninni og við finnum lausn með þér.
Við eigum bara eitt eldhús, þannig að þegar dagur bókast, þá erum við bókuð. En ef við erum laus í næstu viku, þá tökum við glöð á móti ykkur, þannig að ekki hika við að senda fyrirspurn sama hve stutt er í viðburðinn.
Kennsla, allt hráefni, svuntur og áhöld, vegleg máltíð og allt uppvask og frágangur. Eftir á fá allir uppskriftir og myndir sendar í tölvupósti.
Þú sendir okkur fyrirspurn og við svörum með tillögu og verði. Þegar þú staðfestir er dagurinn ykkar. Við sendum reikning fyrir 30% staðfestingargjaldi 60 dögum fyrir viðburðinn og fyrir restinni 14 dögum fyrir.
Það má fækka gestum allt að 7 dögum fyrir viðburðinn. Ef þú afbókar meira en 60 dögum fyrir er það að kostnaðarlausu. Eftir það fæst staðfestingargjaldið ekki endurgreitt og innan 14 daga greiðist fullt verð.