
Salt Eldhús er staður þar sem fólk getur komið, eldað saman og átt góða stund.
Þú ferð heim með bros á vör og nýja rétti í farteskinu.


Í boði er fjölbreytt úrval matreiðslunámskeiða, fyrsta flokks aðstaða og frábærir kennarar. Einnig eru í boði einkanámskeið fyrir hópa, fyrirtæki og stofnanir.
Námskeiðin eru við allra hæfi, hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin í eldhúsinu eða hefur eldað lengi.
Á námskeiðum okkar elda þátttakendur sjálfir allan mat frá grunni.
Unnið er í litlum hópum og allir fá að spreyta sig.

Kokkarnir okkar koma víða að og kenna þá matargerð sem þeir þekkja best.

Við gæðum okkur á afrakstrinum í góðum félagsskap. Þátttakendur fá uppskriftirnar sendar eftir námskeiðið.

Eigandi Salt Eldhúss er Hjörtur Atli Guðmundsson, sérlegur áhugamaður um matreiðslu og matargerð. Auk Hjartar kemur fjöldi matreiðslumanna og matgæðinga að kennslu á námskeiðum fyrirtækisins og uppákomum á þess vegum.

Emilía er gríðarlega metnaðarfull fyrir Salt Eldhúsi og vill helst kenna námskeið vikulega. Hún heldur öllum við efnið og tryggir að gæðum sé aldrei fórnað.

Monika er sú sem smyr tannhjólin í vélinni. Hún sér til þess að dagarnir gangi sinn vanagang og tryggir að Salt Eldhús geti boðið gesti velkomana dag hvern. Hún er mikill matgæðingur með afbragðs auga fyrir smáatriðum.

Hjörtur Atli er eigandi Salt Eldhús. Hann er mikill áhugamaður um matargerð og matreiðslu og veit fátt skemmtilegra en að eyða klukkutímunum saman í eldhúsinu að útbúa eitthvað sem enginn í fjölskyldunni skilur af hverju tók heilan laugardag og öll eldhústólin ð útbúa.
Við erum á 6. hæð í Þórunnartúni 2. Gengið er inn hjá Hringekjunni og lyftan er á vinstri hönd.



Ferskt pasta, víetnamskur götumatur, mið-austurlenskir töfrar og margt fleira. Uppgötvaðu nýja bragðheima undir handleiðslu fagmanna og eigðu með okkur notalega stund.

Íslensk hráefni, saga og menning. Við eldum þriggja rétta máltíð, drykkir innifaldir. Kennt á ensku, tilvalið fyrir erlenda gesti.

Tilvalið fyrir starfsmannahópa, afmæli eða vinahópa. Góð samverustund þar sem hópurinn eldar og borðar saman. Fyrir allt að 36 manns.
