Algengar spurningar

Gott að vita
áður en þú kemur.

Hér eru svör við því sem við erum oftast spurð um. Ef svarið er ekki hér, hafðu endilega samband.

Hafa samband
01 / 04


Námskeiðin

01

Þarf ég að kunna að elda?

Nei. Kokkurinn leiðir þig í gegnum hvert skref og það eina sem þarf er að vera til í að taka þátt.

02

Er þetta sýnikennsla?

Nei, við eldum saman. Á sumum námskeiðum eru einhver atriði sem kokkurinn sýnir, en að langmestu leyti sjá þátttakendur sjálfir um alla eldamennsku. Kokkurinn sýnir hvert skref og þú tekur eins mikinn þátt og þú vilt. Í lokin er sest til borðs og borðað það sem var eldað.

03

Hvað er Cook & Dine?

Námskeið í íslenskri matargerð, kennt á ensku, í hádeginu eða á kvöldin. Við eldum þriggja rétta íslenska máltíð með kokki og setjumst svo saman til borðs. Drykkir innifaldir. Íslendingar eru líka velkomnir.

04

Hvað tekur þetta langan tíma?

Námskeiðin okkar eru á bilinu 2-3,5 tímar, að meðtalinni máltíðinni.

05

Hvað er innifalið?

Kennsla, allt hráefni, svuntur og áhöld, vegleg máltíð og allt uppvask og frágangur. Eftir á fá allir uppskriftir og myndir sendar í tölvupósti.

06

Á hvaða tungumáli er kennt?

Íslensku námskeiðin eru flest kennd á íslensku og Cook & Dine á ensku. Það kemur fram á síðu hvers námskeiðs.

07

Er hægt að bóka fyrir einn?

Já. Þú eldar með hinum gestunum og við borðum öll saman við eitt borð.

08

Getið þið tekið tillit til ofnæmis eða sérþarfa?

Láttu okkur vita við bókun og við reynum að bregðast við eftir bestu getu.

09

Er aldurstakmark?

Íslensku námskeiðin eru ætluð 15 ára og eldri og Cook & Dine 7 ára og eldri, í fylgd með fullorðnum. Langar þig að taka einhvern aðeins yngri með? Hafðu samband.

02 / 04

Bókanir

01

Hvernig er bókað?

Þú bókar á vefnum og færð staðfestingu í tölvupósti um leið, með öllu sem þú þarft til að rata til okkar.

02

Hvernig greiði ég?

Verð eru í íslenskum krónum og koma fram á síðu hvers námskeiðs. Námskeið eru greidd að fullu við bókun. Einnig má greiða með gjafabréfi.

03

Hvað ef ég þarf að afbóka?

Á opnum námskeiðum og í Cook & Dine gildir þetta: Ef þú afbókar 7 dögum fyrir námskeið eða fyrr færðu fulla endurgreiðslu. Ef styttra er í námskeiðið en meira en 72 tímar fæst helmingur endurgreiddur, eða þú getur fært bókunina á aðra dagsetningu án þess að tapa neinu. Innan 72 tíma, eða ef þú mætir ekki, fæst ekki endurgreitt.

04

Get ég fært bókunina?

Já. Ef þú vilt færa þig á aðra dagsetningu reynum við að koma til móts við þig, svo lengi sem meira en 72 tímar eru í námskeiðið.

05

Eruð þið með gjafabréf?

Já, þú getur keypt þau hér á vefnum. Gjafabréf gilda í tvö ár frá kaupdegi. Þau fást hvorki endurgreidd né skipt fyrir peninga.

06

Námskeiðið sem ég vil er fullt eða ekki á dagskrá. Hvað þá?

Sendu okkur línu og við látum þig vita þegar það er næst á dagskrá. Ný námskeið bætast reglulega við.

07

Má ég senda einhvern í minn stað?

Já. Þú getur alltaf sent einhvern í þinn stað.

08

Ertu að skipuleggja fyrir hóp?

Hvort sem það er vinnustaðurinn eða vinahópurinn, þá sendum við þér tillögu og verð.

03 / 04

Þegar þú
mætir

01

Hvar eruð þið?

Við erum á 6. hæð í Þórunnartúni 2. Gengið er inn hjá Hringekjunni og lyftan er á vinstri hönd.

02

Hvar get ég lagt?

Á virkum dögum eftir kl. 16 og um helgar er frítt að leggja fyrir framan skrifstofur Reykjavíkurborgar.

03

Er aðgengi fyrir hjólastóla?

Það er lyfta upp á 6. hæð, en á leiðinni eru nokkrir þröskuldar. Ef einhver í hópnum notar hjólastól, hafðu samband áður en þú bókar og við förum yfir málið.

04

Hverju á ég að klæðast?

Eitthvað þægilegt. Það er líf og fjör í eldhúsinu og fötin mega ekki þvælast fyrir. Þægilegir skór líka.

05

Hvað ef eitthvað tefur mig?

Við bíðum í nokkrar mínútur áður en við byrjum. Ef eitthvað tefur þig, komdu samt og vertu með þegar þú mætir. Ef þú hættir við að koma fæst ekki endurgreitt.

06

Verða teknar myndir?

Við tökum myndir á námskeiðum og deilum þeim með hópnum, og stöku sinnum á samfélagsmiðlum. Láttu gestgjafann vita ef þú vilt síður vera á myndunum.

07

Fæ ég uppskriftirnar?

Já. Eftir á fá allir uppskriftir og myndir sendar í tölvupósti.

04 / 04

Hópar og
fyrirtæki

01

Þarf hópurinn að kunna að elda?

Nei. Kokkurinn leiðir hópinn í gegnum hvert skref og það eina sem þarf er að vera til í að taka þátt.

02

Hvað komast margir að?

Við getum tekið á móti allt að 36 manns, en það er þá ansi þétt. Á opin námskeið koma ekki fleiri en 16.

03

Hvað tekur þetta langan tíma?

Námskeiðin okkar eru á bilinu 2-3,5 tímar, að meðtalinni máltíðinni.

04

Getið þið tekið tillit til ofnæmis eða sérþarfa?

Já, og í einkahópum er það yfirleitt lítið mál. Við getum lagað matseðilinn að flestum þörfum. Láttu okkur vita í fyrirspurninni og við finnum lausn með þér.

05

Með hve löngum fyrirvara þarf að bóka?

Við eigum bara eitt eldhús, þannig að þegar dagur bókast, þá erum við bókuð. En ef við erum laus í næstu viku, þá tökum við glöð á móti ykkur, þannig að ekki hika við að senda fyrirspurn sama hve stutt er í viðburðinn.

06

Hvað er innifalið?

Kennsla, allt hráefni, svuntur og áhöld, vegleg máltíð og allt uppvask og frágangur. Eftir á fá allir uppskriftir og myndir sendar í tölvupósti.

07

Hvernig er bókað?

Þú sendir okkur fyrirspurn og við svörum með tillögu og verði. Þegar þú staðfestir er dagurinn ykkar. Við sendum reikning fyrir 30% staðfestingargjaldi 60 dögum fyrir viðburðinn og fyrir restinni 14 dögum fyrir.

08

Hvað ef fjöldinn breytist?

Það má fækka gestum allt að 7 dögum fyrir viðburðinn. Ef þú afbókar meira en 60 dögum fyrir er það að kostnaðarlausu. Eftir það fæst staðfestingargjaldið ekki endurgreitt og innan 14 daga greiðist fullt verð.