Fyrirtækjaviðburðir í Reykjavík

Út af skrifstofunni
og inn í eldhúsið.

Hópurinn eldar saman frá grunni undir handleiðslu fagmanns og gæðir sér svo á afrakstrinum. Tilvalið fyrir starfsmannahópa, deildir og gesti frá útlöndum.

Tilefnin

Nóg af ástæðum
til að loka tölvunni.

Hópefli, árshátíð, áfangi sem vert er að fagna eða gestir frá útlöndum. Við mótum kvöldið að hópnum ykkar.

Senda fyrirspurn
Hópefli

Hópefli sem virkar.

Allir fá hlutverk og enginn situr hjá. Í lokin sest hópurinn saman til borðs og borðar það sem hann eldaði.

Árshátíðir og tímamót

Gott ár á skilið góða veislu.

Áfangi í rekstrinum, gott ár eða nýtt upphaf. Þið komið með tilefnið og við sjáum um eldhúsið.

Erlendir gestir

Sýndu þeim Ísland.

Ertu með erlenda samstarfsfélaga í heimsókn? Þá eldum við íslenska veislu með hópnum og kennum á ensku.

Viðskiptavinir og samstarfsaðilar

Betra yfir góðum mat.

Bjóddu viðskiptavinum eða samstarfsaðilum í eldhúsið. Það er auðveldara að kynnast yfir eldavélinni en við fundarborðið.

Fyrirkomulagið

Eldið saman.
Kallið það hópefli.

Kokkurinn stýrir eldamennskunni og allir taka þátt. Svo borðar hópurinn saman.

Af hverju að elda saman?

Allir hafa
sitt hlutverk.

Í eldhúsinu fá allir verkefni og hópurinn vinnur saman að einni máltíð.

Það er auðvelt að spjalla þegar hendurnar eru uppteknar.

Og maturinn er betri þegar þið eldaðuð hann sjálf.

Fyrirspurn

Segðu okkur frá hópnum.

Þetta má alveg vera óljóst í bili! Segðu okkur bara það helsta og við finnum út úr rest.

Nauðsynlegt
Nauðsynlegt
Valfrjálst
Nauðsynlegt
Nauðsynlegt
Valfrjálst
Valfrjálst
Fyrirspurn staðfestir ekki bókun. Við höfum samband og förum yfir málin með þér.
Takk fyrir! Við höfum samband fljótlega.
Úps, eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur eða sendu okkur línu á info@salteldhus.is.
Gott að vita

Algengar
spurningar.

Sjá allar spurningar
01

Þarf hópurinn að kunna að elda?

Nei. Kokkurinn leiðir hópinn í gegnum hvert skref og það eina sem þarf er að vera til í að taka þátt.

02

Hvað komast margir að?

Við getum tekið á móti allt að 36 manns, en það er þá ansi þétt. Á opin námskeið koma ekki fleiri en 16.

03

Fáum við eldhúsið út af fyrir okkur?

Já. Þegar þið bókið er eldhúsið ykkar allan tímann.

04

Getið þið tekið tillit til ofnæmis eða sérþarfa?

Já, og í einkahópum er það yfirleitt lítið mál. Við getum lagað matseðilinn að flestum þörfum. Láttu okkur vita í fyrirspurninni og við finnum lausn með þér.

05

Með hve löngum fyrirvara þarf að bóka?

Við eigum bara eitt eldhús, þannig að þegar dagur bókast, þá erum við bókuð. En ef við erum laus í næstu viku, þá tökum við glöð á móti ykkur, þannig að ekki hika við að senda fyrirspurn sama hve stutt er í viðburðinn.

06

Hvað tekur þetta langan tíma?

Námskeiðin okkar eru á bilinu 2-3,5 tímar, að meðtalinni máltíðinni.

07

Hvað er innifalið?

Kennsla, allt hráefni, svuntur og áhöld, vegleg máltíð og allt uppvask og frágangur. Eftir á fá allir uppskriftir og myndir sendar í tölvupósti.

08

Hvernig er bókað?

Þú sendir okkur fyrirspurn og við svörum með tillögu og verði. Þegar þú staðfestir er dagurinn ykkar. Við sendum reikning fyrir 30% staðfestingargjaldi 60 dögum fyrir viðburðinn og fyrir restinni 14 dögum fyrir.