





Pho súpa frá grunni, ferskar vorrúllur og kjötbollur með nuoc cham sósu. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Kennt á ensku.
Víetnamskur matur er þekktur fyrir að vera bragðmikill, ilmríkur og gómsætur. Á þessu skemmtilega námskeiði lærum við að gera soð í hina frægu pho súpu og eldum hana frá grunni. Gerum ferskar vorrúllur með núðlum og stökku grænmeti, og dásamlegar kjötbollur með hinni frægu nuoc cham sósu, sem er gjarnan borin fram með víetnömskum mat. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.