







Í tilraunaeldhúsinu prófum við eitthvað nýtt, fiktum aðeins og það sem heppnast vel kemst á planið hjá Salt eldhúsi
Tilraunaeldhúsið er óútreiknanlegt, margbreytilegt, en umfram allt skemmtilegt. Við fiktum og prófum og leikum okkur aðeins. Hugmyndin er einföld; við viljum fá til okkar þau sem eru til í að taka þátt í að þróa Salt eldhús með okkur. Handritið er laus mótað. Matseðillinn er óráðinn og við krossleggjum bara fingur og vonum að allt blessist. Við munum alltaf elda eitthvað gott saman, en það kemur ekki í ljós hvað það er fyrr en á hólminn er komið. Það er ekkert víst að það virki allt saman, en það er heldur ekkert víst að það klikki. Þessi námskeið eru ódýrari en önnur hjá okkur, enda eruð þið sjálfviljug tilraunadýr í eldhúsinu.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.