







Lærðu réttu handtökin í tælenskri matargerð með Sam. Kennt á ensku.
Margir íslendingar hafa kynnst tælenskri matargerð að einhverju marki. Á þessu námskeiði gefst frábært tækifæri til að læra réttu handtökin í þessari dásamlegu matargerð. Sam Anurak Jansawek er tælenskur að uppruna og hefur búið og starfað hér á landi í tíu ár. Hann er listaskólagenginn og hefur brennandi áhuga á matargerð. Sam er snillingur í að matreiða rétti frá heimalandi sínu og lofum við góðum, upprunalegum mat og skemmtilegri stemmningu. Í lokin er slegið upp veislu hlaðborði og þátttakendur gæða sér á kræsingunum sem þeir hafa átt þátt í að útbúa sjálfir. Athuga að námskeiðið er kennt á ensku.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.