







Götumatur frá Indlandi, Tælandi, Taívan, Kóreu og Víetnam á einu kvöldi.
Svokölluð „street food“ menning er vinsæl um heim allan. Næstum hvar sem þú drepur niður fæti í heiminum finnurðu matarvagn á næsta götuhorni með eitthvað gómsætt að bjóða upp á. Á Indlandi fáum við dásamlegar laukkökur með myntusósu, í Víetnam vorrúllur með risarækjum og súrsætri sósu, í Tælandi gufusoðin grísa-, rækju- og gulróta-wonton og svo má lengi telja. Á þessu námskeiði flökkum við um Asíu en í þeim heimshluta er götumatur þekktur fyrir að vera bragðmikill og kryddaður. Við eldum girnilega rétti frá mismunandi löndum og kynnumst öllum ljúffengu sósunum og meðlætinu sem gerir matinn svo góðan.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.