





Paella er líklega þekktasti réttur spænska eldhússins og í þessu námskeiði lærum við um söguna, hrísgrjónin og allt það sem mestu máli skiptir til að búa til Paellu frá grunni.
Paella er líklega þekktasti réttur spænska eldhússins. Orðið paella þýðir panna en það er einmitt það áhald sem þarf til að gera paella. Paellan er talin upprunin í Valencia. Til eru margar útgáfur af paellu, sem hafa þróast í gegnum aldir en uppistaðan er í grunninn hrísgrjón. Spánverjar nota stutt, spænsk hrísgrjón sem heita “calasparra”. Ef þau fást ekki er hægt að nota ítölsku “arborio” grjónin (risotto grjón) í paelluna. Það má síðan nota sjávarfang, kjöt (kjúkling, önd, kanínu) eða jafnvel snigla í paellu og flest héruð á Spáni eru með sína sérstöku útfærslu, bæði hvað varðar hráefni og ekki síst hvernig paellan er elduð. Í Andalúsíu er hún t.d. gjarnan elduð það vel að á botninum er karamellukennd skán sem þykir afar góð. Upprunalega var paella elduð sem hádegisverður fyrir landbúnaðarverkamenn og bændur og var þá notað það hráefni sem akrarnir buðu upp á, svo sem tómatar, laukur og sniglar og e.t.v bætt út í smá anda- eða kanínukjöti. Stundum jafnvel kjúkling. Við sjávarsíðuna var nærtækt að notast við sjávarfang, bæði fisk og skelfisk ýmis konar. Paella marisco er einmitt paella með sjávarfangi. En svo má blanda sjávarfangi og kjöti saman eftir smekk eins og algengt er.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.