





Soð og sósur frá grunni: béarnaise, demi-glace, rauðvínssósa, piparsósa, beurre blanc og fleiri.
Klassískar sósur eru eitthvað sem oft vill vefjast fyrir fólki að elda og margir eru hræddir við að ráðast í að gera bernaisesósu, rauðvínssósu, piparsósu eða soðsósu frá grunni. Girnileg sósa setur punktinn yfir I-ið ef hún er góð og breytir hversdagsmat í veislumat. Á þessu námskeiði lærum við að gera grunnsósurnar og hvernig má útfæra þær á mismunandi vegu. Við lærum hvernig á að smakka sósu til, hvaða verkfæri má nota við að leiðrétta hana og öðlast þannig öryggi og skilning á grundvallaratriðum í sósugerðinni. Í lok námskeiðs sláum við upp veislu með lambi, nauti, kjúklingi og bleikju og smökkum allar sósurnar.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.