







Sunesh Subrahmoian gefur okkur innsýn í matreiðsluna sem hann ólst upp við í Kerala. Kennt á ensku.
Indverska eldhúsið býr yfir ótrúlegum fjölbreytileika. Matreiðslan er ólík frá suðri til norðurs og hvert hérað er með sín krydd og sérkenni. Persar, Portúgalir, Bretar og Hollendingar eiga langa sögu af viðskiptum við Indland og hafa haft sín áhrif og sett sitt mark á matargerðarlistina. Við höfum fengið Sunesh Subrahmoian matreiðslumann á veitingastaðnum Gandhi í Reykjavík til að gefa okkur innsýn í matreiðsluna sem hann ólst upp við. Sunesh hefur unnið víða um heim og einnig verið með stutta matreiðsluþætti á Youtube. Hann er fæddur í bænum Muziris við Malabar ströndina í Kerala-héraði. Fiskur og sjávarfang er því mikilvægt hráefni að hans mati og sá matur sem hann ólst upp við. Kennt er á ensku.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.