







Naut, lamb og önd: lærðu að velja og matreiða hina fullkomnu steik, með sósu og meðlæti.
Ægir Friðriksson matreiðslumeistari þekkir góða steik þegar hann sér hana. Hann ætlar að kenna okkur að velja og matreiða hina fullkomnu steik, hvorki meira né minna og í leiðinni að sýna okkur hvernig eigi að gera góða sósu og elda einfalt, skothelt og ljúffengt meðlæti. Ægir tekur fyrir naut, lamb og önd og kennir helstu matreiðsluaðferðir og undirbúning. Sósur munu einnig fá pláss, því engin er steik án sósu, þó svo að aðaláherslan sé á sjálfar steikurnar. Síðast en ekki síst er slegið upp veislu í lok námskeiðsins, þar sem þátttakendur gæða sér á afrakstrinum.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.