Frakkland
·
Matreiðslunámskeið í Reykjavík

Franskur jólabröns

Við gerum franskan jólabröns frá grunni og eigum notalega stund þar sem við sláum upp jólaveislu og gæðum okkur á því sem við höfum búið til.

Vinsælt er víða um heim að bjóða í dögurð eða bröns um jólin. Fjölskyldur og vinir geta þá komið saman þegar allir, börnin líka, eru upplagðir og hressir. Frakkar eiga spennandi matarhefðir við slík tækifæri, rétt eins og aðrar þjóðir. Á þessu námskeiði matreiðum við franska rétti sem eru vinsælir um jólaleytið þar í landi. Frakkar nota hvert tækifæri til þess að borða góðan mat. Á námskeiðinu gerum við egg Benedict með hollandaise sósu, bökum quiche Lorraine (klassíska franska böku), gerum vöfflu með andaconfit, lærum að gera kjúklingalifrapaté, sem þátttakendur geta líka tekið með heim og notið síðar. Í eftirrétt er síðan bûche de Noël (franskur Jóladrumbur) sem er gjarnan hafður á borðum á Jóladag. Í lok námskeiðs sláum við síðan upp veislu og gæðum okkur á því sem við höfum búið til með glasi af mímósu.

Lengd
3 klst.
Staðsetning
Þórunnartún 2, 105 Reykjavík
Verð
20.900 kr.
Næsta námskeið
Velja dagsetningu
Engin reynsla nauðsynleg. Bara smá forvitni.
Franskur jólabröns
20.900 kr.
·
3 klst.
Velja dagsetningu
Gakktu í bæinn.

Finnum dag sem hentar.

Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.

Lengd
3 klst.
Verð
20.900 kr.
Staðsetning
Þórunnartún 2, 105 Reykjavík
Kokkur
Teymi Salt Eldhúss