







Klassískir franskir eftirréttir eins og á góðu bistro, frá tarte tatin til ekta súkkulaðimúsar.
Hið dæmigerða franska bistro er veitingastaður, gjarnan hverfisstaður, þar sem boðið er upp á góða, hefðbundna franska rétti, oft heimilislega, á sanngjörnu verði. Þessi gerð veitingastaða varð til í París á 19. öld og tók virkilega að blómstra á 20. öld, varð e.k. tákngervingur hins franska lífsstíls eins og svo margir ljósmyndarar og listmálarar hafa gert skil í myndefni sínu. Margir frægir franskir kokkar hafa einmitt hafið “sóló” feril sinn með því að opna sitt eigið bistro og koma sér þannig á kortið. Bistro eftirréttir eru gjarnan klassískir, góðir og vel útilátnir. Matseðillinn á námskeiðinu gæti vel verið eftirréttaseðill á góðu, hefðbundnu bistro. Á námskeiðinu lærið þið ýmislegt sem er gott að kunna eins og að laga vanillukrem, vanillusósu, karamellíseruð epli, hvernig á að gera ekta súkkulaðimús, hvernig á að gera góða bökuskel, sítrónukrem í böku og margt fleira.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.