







Lærðu að gera fullkomna bökuskel frá grunni og farðu heim með þrjár litlar bökur, eina af hverri sort.
Franskar bökur (tartes) eru vinsælar árið um kring í Frakklandi. Þær eru til í ótal útfærslum, sætar sem ósætar, alltaf fallegar og gómsætar. Nokkrar bökur teljast klassík, þar á meðal jarðarberjabakan, grænmetisbakan og súkkulaðibakan. Á þessu námskeiði förum við yfir aðferðir við að útbúa sætar og ósætar bökuskeljar, sem við svo gerum frá grunni ásamt tilheyrandi fyllingum. Við vinnum með þrjár bökur, eina ósæta og tvær sætar. Tilgangurinn er að kynnast grunninum vel þannig að þátttakendur geti síðan tekist á við alls konar bökubakstur. Hver þátttakandi tekur síðan þrjár litlar bökur með sér heim, eina af hverri sort.
Á staðnum eru öll áhöld og innihaldsefni svo að þú þarft bara að mæta.