Ramya Shyam eldar Indverskt í Salt Eldhúsi/Ramya Shyam cooks Indian in Salt Eldhus
Ramya Shyam er eiginkona sendiherra Indlands á Íslandi, ástríðukokkur og brennur fyrir að kynna matarmenningu þjóðar sinnar. Á þessu námskeiði beinir hún sjónum sínum að Norður Indlandi og hefur sett saman skemmtilegan matseðil með grænmetisréttum. Ramya leggur áherslu á að nota hráefni sem er aðgengilegt í stórmörkuðum og að eldamennskan sé ekki tímafrek. Kennt er á ensku.
Mrs Ramya Shyam is the spouse of the Indian ambassador to Iceland, a passionate cook and an avid promoter of India´s food culture. In this class she sets her eyes on North India and has put together a menu to showcase some typical vegetarian dishes. Ramya places emphasis on using ingredients that are readily available in supermarkets and that preparation and cooking is not too time consuming. The class is conducted in English.
Menu:
- Pakoda – Fried chickpea fritters
- Jeera rice – Basmati rice tempered with cumin
- Aloo Palak – Potatoes amd spinach curry
- Dal – Red lentils cooked with garlic and cumin
- Oats kheer – Pudding made with oats, sugar and nuts
Innifalið er allt hráefni, kennsla matreiðslumanns, þjónusta uppvaskara/aðstoðarmanns, afnot af svuntu og öllum áhöldum. Þátttakendur fá uppskriftir af því sem gert er til að taka með sér heim. Síðast en ekki síst er slegið upp veislu í lok námskeiðsins, þar sem þátttakendur gæða sér á afrakstrinum.
Kennari á námskeiðinu er Ramya Shyam
Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í u.þ.b. 2 klst
Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja, sem endurgreiða námskeiðskostnað.