"Beef Wellington" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Beef Wellington

19.900 kr
- +

Beef Wellington er glæsilegur, klassískur réttur og afar fallegur á veisluborðið. Það er því bæði gagnlegt og gaman að kunna að gera Beef Wellington,en að sama skapi getur það vafist fyrir fólki hvernig á að bera sig að svo vel takist til, ekki síst ef á að bjóða til veislu.

Við höfum því fengið Ægir Friðriksson matreiðslumeistara til að leiðbeina á þessu námskeiði og kenna þátttakendum að gera þennan fræga rétt. Ægir er reynslubolti í bransanum og er núna kennari við Hótel og Veitingaskólan.

Á námskeiðinu mun Ægir fara yfir og sýna þátttakendum frá a-ö hvernig á að bera sig að við að undirbúa og matreiða Beef Wellington. Í kjölfarið munu þátttakendur hver fyrir sig undirbúa og matreiða Beef Wellington.

Á námskeiðinu er einnig farið í hvernig á að gera meðlæti, soðsósu, fondant kartöflur og gljáðar gulrætur. Við gerum líka fallegan og Jólalegan eftirrétt með mascarpone ost og berjum. Í lok námskeiðsins er síðan sest til borðs og við gæðum okkur á afrakstrinum.

Á námskeiðinu gerum við:

  • Beef Wellington
  • Soðsósu
  • Fondant kartöflur
  • Gljáðar gulrætur
  • Mascarpone krem og berja-melba

Innifalið er allt hráefni, þjónusta uppvaskara/aðstoðarmanns, afnot af svuntu og öllum áhöldum ásamt uppskriftum til að taka með heim. Síðast en ekki síst er slegið upp veislu í lok námskeiðsins, þar sem þátttakendur gæða sér á afrakstrinum

Kennari er Ægir Friðriksson matreiðslumeistari og kennari við Hótel- og Veitingaskólann

Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í ca 31/2 klst.

Lágmarksfjöldi þátttakenda á þetta námskeið er 12.

Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja, sem endurgreiða námskeiðskostnað.